Gaggalagúú
01.05.2006 03:46:31 / Sabbaló

Vesen

Eini gallinn við http://www.sabbalo.blog.is/blog/sabbalo/  er að maður þarf alltaf að skrá sig inn til að kommenta og því nennir fólk ekki. EEEN þar get ég sett inn myndir af neti og úr minni tölvu.

www.sabbalo.blogspot.com er alveg að gera sig sko. Allt til alls, en á ensku.

http://sabbalo.bloggar.is/  er alveg að gera sig..komment, myndir det hele...æ ég bara segi svona..tók mér smá pásu frá verkinu góða sem er að smella saman í þessum skrifuðu...

vá hvað ég á mörg blogg núna.


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 18:19:32 / Sabbaló

Are you gonna go my way??

http://www.sabbalo.blog.is/blog/sabbalo/  

Kíkja þangað ef þið viljið fylgjast með bleika sveppnum.

Adios og over and out héðan úr gula ungafílingnum...

See you.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 15:58:54 / Sabbaló

OK

Vinsamlegast:

Er það þetta: http://sabbalo.blog.is/blog/sabbalo/ 

Eða er það þetta: http://www.sabbalo.blogspot.com

Ég ætla á annan hvorn staðinn.

Vote please, allavega fastagestirnir!

Danke.

S.


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 13:36:27 / Sabbaló

.......................................................

Ég er flutt...enn einu sinni. Og ætla að vera þar þangað til annað kemur í ljós. Kvíði því að setja inn alla þessa tengla, þarf að fá þjálfun í blogger takk. Hlín þú kennir mér það allt saman, ert svo klár í því.

Gangið hægt um gleðinnar dyr þau sem eru að fara út á lífið.

Adios og sjáumst á www.sabbalo.blogspot.com

Knús

Svava


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 13:06:12 / Sabbaló

Sumarið er komið!

Og mælirinn sýnir 17 gráður í plús...í sól sko! Jibbý! Nema hvað að ég sit inni og er að reyna að læra. Ætla að fara að koma mér niður í skóla, það virkar eitthvað betur þar heilastarfsemin þessa dagana..þannig að nú er að flytja yfir helgina. Ég verð í góðum félagsskap í dag allavega, fyrrverandi sambýlingurinn minn hún Hjördís þarf líka að massa eitthvað eins og ég og ætlum við að bretta upp ermar og vera svona líka duglegar fram á kvöld eða nótt.

Leyfði mér að sofa alveg til korter yfir tíu í morgun. Fór að sofa rétt eftir þrjú í nótt þannig að þetta er ágætis svefn. Verður lítið um hann næstu 3 sólarhringana eða fjóra. En ég get líka sofið síðar!

Hitinn í Köben í dag er 12 gráður og smá sól, en spáð rigningu alla helgina. Vonum að skammturinn verði búinn þann 10 maí.

Í Tyrklandi eru 18 gráður og rigning! Vonum líka að það verði betra veður í enda maímánaðar!

Bloggskipti enn í athugun...enginn tími til framkvæmda!

Njótið lífsins!

Over and out.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 16:05:18 / Sabbaló

........

Hvenær ætli ég gefist endanlega upp á þessu!!! Núna sést ekki fallega fallega myndin sem ég setti inn í gær.. af bókaskiltinu góða á Þingeyri. OOPPPs...your picture eitthvað blablabull...samt er hún inni á photobucket....crap...

Hvað gera bændur þá? Gefast þeir upp? Ég er ekki að nenna þessu minn sirkus þó ég hafi ekki prófað það..en það sem ég hef skoðað er sosum allt í lagi, nema sýnist helmingurinn af fólkinu setja inn fólk á sína contact lista sem það kannski veit hver er en þekkir í rauninni ekki baun í bala...allt þetta "fræga" lið á íslandi..þá er það bara allt í einu bestu vinir jóns og gunnu út í bæ sem kannski þekkja þau ekki neitt...hmm...ég veit þó ekki...

líst vel á www.123.is og þá borgar maður 2900 kall fyrir árið, myndir líka..og getur sett inn myndir úr þinni eigin tölvu. það er flott....

en ég veit ekki....svo er spurning um að hætta þessu bloggeríi bara alveg...ætli ég verði ekki hvort sem er svo upptekin næsta árið að ég hafi bara engan tíma til þess að blogga....en eins og ég segi...ef ég hef tíma núna, sem ég hef ekki í rauninni, að þá veit maður aldrei hvað gerist....

Í morgun þegar ég fór út til að fara í síðustu kennslustundina mína í Kennó, þá tók á móti mér svona vorlykt. Fyrsta sinn sem ég finn hana á þessu ári allavega!

4 dagar í lokaskil og lokahóf

13 dagar í Köbenhavn með skvísunum

32 dagar í Icmeler-Tyrklandi, með kriss kross....:)

Svo er sumarið bara stuð og stemning!

Ciao bella

Myndalausa sabbaló


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 00:19:40 / Sabbaló

Ekki gleyma að lesa!

 Öll börn (og kannski bara fullorðnir líka) eiga að reyna að lesa í a.m.k. 15 mínútur á dag. Ég held þetta gleymist svolítið í samfélagi dagsins í dag. Lestur skiptir svo miklu máli, læsi það er að segja. Að vera læs. Og vert er að taka fram að þó að börnin okkar séu orðin læs(eða ykkar, ég á engin) að þá er engin ástæða til þess að hætta að lesa fyrir þau. Einmitt ætti að halda áfram að lesa fyrir þau og með þeim, því að þeir fullorðnu sem lesa, lesa þá erfiðari texta fyrir börnin og þau auka við orðaforða sinn.

Bara smá pæling því lífið snýst um þetta þessa dagana hjá mér...set linkinn hérna inn þegar síðan okkar Dísu er tilbúin..nú fer þetta að smella..enda naumur tími til stefnu og ég er meira að segja með samviskubit yfir að eyða tímanum í þetta blogg..svo er kominn háttatími..er sloj með hausverk og ógeð...held það stafi af stressi og auknu álagi.

en það sem drepur mann ekki styrkir mann...hef heyrt þennan þó nokkrum sinnum.

Setti inn þessa fallegu mynd af skilti sem var á húsi nokkru á Þingeyri.Tók hana á ferð okkar um Vestfirði með þýsku vinum okkar, Kristinu og Jan. Set hana hér inn vegna þess að mér finnst hún flott og vegna þess að hún vekur okkur til umhugsunar líka. Og sérstaklega af því að Hlín vinkona er svo skotin í henni. Mæli með Þingeyri. Það er yndislegt að koma þangað.

Eigið góða helgi og góða daga...ég ætla að flytja lögheimili mitt upp í Stakkahlíð yfir helgina.

Sjáumst þegar snjórinn er hættur að falla snemma á morgnana!

sVaVa


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 08:48:39 / Sabbaló

Íslendingar

ég er ekki að skilja þá upp til hópa.

Byrjum á byrjuninni. Ég var í bíó um daginn á Ice Age 2. Með skjólstæðing minn úr vinnunni sem er fjölfatlaður og í hjólastól. Við vorum síðust út úr salnum og þurfum auðvitað að fara út úr honum þar sem við komum inn í hann. Þar eru þungar hurðir og þær voru lokaðar. Ég er ein að bjagast með hjólastólinn og skjólstæðinginn í honum út um hurðina. Ýta á hurð, renna stól í gegn, halda hurð..þetta tók um eina mínútu að komast þarna út...OG FULLT AF FÓLKI STÓÐ OG GLÁPTI Á OKKUR! Engum datt til hugar að HJÁLPA OKKUR !! ég var svo pirruð en hamdi mig og sagði ekki orð. Enda átti ég það ekki til.....

Svo er það það nýjasta. Gerðist fyrir helgi að vinkona vinkonu minnar var á ónefndum stað hér í bæ að læra..æ ég hlýt að geta sagt það..Þjóðarbókhlöðunni...og fær aðsvif og dettur niður. Nær að hringja í neyðarlínuna eða mömmu sína eða einhvern...ENGINN stoppaði og hjálpaði henni. Systir hennar þurfti að hringja uppeftir og biðja einhvern starfsmann að aðstoða stúlkuna sem lægi á gólfinu hættulega veik! Svo kemur starfsmaður og segir eitthvað já, ég þarf aðeins að gá að svolitlu og FER! hvað er að fólki nú til dags?? Höfum við kannski alltaf verið svona??

Æ ég bara átti ekki til orð.

Eigið góðan dag. Give a hand when it is needed.


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 22:39:00 / Sabbaló

Stærðfræðilega sinnuð...

þegar maður er umkringdur fullri stofu af stærðfræðigögnum..þá gengur manni greinilega vel að einbeita sér....ég á það skilið að taka smá pásu núna!

Hef stofuna alveg út af fyrir mig og er að hugsa um að endurtaka leikinn á morgun að loknum skóla...ætla svo að taka smá pásu og skella mér í vonandi ekki síðasta tímann í BodyBalance..vegna lélegrar mætingar á kannski að leggja þá tíma niður:( Synd því þetta er snilld eftir að hafa prófað nokkrum sinnum....svo verður bara haldið ótrautt áfram fram á nótt býst ég við.

9 dagar eftir í lokaskil. Þeir verða ekki lengi að líða. Þann sama dag, eða 2.maí fæ ég afhent verkefni(ritgerð) í stærðfræðinni og það á að skila því 10.maí og gera grein fyrir. Fyrir framan bekkinn. En ég er að fara til KÖBEN og Inga líka m.a. og við fáum að koma daginn áður og gera grein fyrir þessu öllu saman! Svo verðum við bara á leiðinni í fluuuuvélinni næsta morgun þegar hinar klára sitt af!

og ég er búin að bæta smá við lagasafnið á dellunni. Keane, Hair, Pearl Jam, U2, Tracy Chapman, Radiohead og snillingurinn Ray Charles bættust við og samt á ég alveg 9 dollara eftir..það er ýmislegt sem má fá fyrir það.... www.allofmp3.com :)

Hvar værum við án tónlistar?? Spáið í það:) Hverjir eru annars að kíkja á mig hérna?? 60 manns í dag...hmm........segiði til ykkar.....

Lifðu í lukku en ekki í krukku!


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 10:52:10 / Sabbaló

Sumar og snjór

Þegar ég vaknaði í morgun var kominn snjór..spáin var reyndar þannig. Og mig dreymir um að fara á skíði..það verður nú ekki fyrr en næsta vetur.

Kíkti á Moggann:

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1197478 bíómyndir??

Á meðan ég var að læra í gærkveldi hlóð ég niður öllum diskunum með SigurRós af www.allofmp3.com og ég er voða lukkuleg með það. Fattaði það að ég átti enn eftir að klára inneignina mína þar síðan fyrir löngu síðan. Mæli með þessari síðu..það var ástkær eldri bróðir minn sem benti mér á hana.

Þá er það bara lokaspretturinn, þannig séð, í lokó. Best að halda áfram.

Sé ykkur í maí!!

og munið að gifta ykkur ekki til fjár, það er ódýrara að taka lán!


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 21:33:05 / Sabbaló

Gleðilegt sumar!

Sumarið hjá mér byrjaði á því að fara með múttu og pabba og auðvitað honum Krissa mínum í Hlégarð. Lions er alltaf með brunch á sumardaginn fyrsta og belgdi maður sig út af dýrindis veigum, en ég er svo klár að ég var með hófið stillt á on. Ekki Krissi. Kíktum svo í nýja íþróttahúsið og sundlaugina sem verið er að byggja við Lækjarhlíð..og vá hvað þetta er flott! Ég hlakka bara til að fara í sund fyrir eða eftir vinnu..og svo krossa ég fingur að þarna verði líkamsræktaraðstaða í leigurýminu..hef ekki hugmynd um það samt..sem sé frábær aðstaða fyrir alla Mosfellinga, unga sem aldna, og meira að segja sér klefi ætlaður fötluðum! Húrra fyrir því!

Göngugengið moi, Kriss et Pabbi et Vaka skelltum okkur svo, eftir smá lestur og lærdóm, í góðan göngutúr. Sem endaði í Víðigerði í Mosfellsdal, og ætli við höfum ekki gengið svona um 7, 5 kílómetra! Stoppuðum á Æstustöðum og kíktum í hesthúsið...ég saknaði þess bara að fá ekki að fara inn til Hlífu heitinnar frænku minnar og fá hindberjadjús hjá henni, fékk alltaf þannig þegar ég kom til hennar. Svona hindberjadjús íslenskan, sem bannaður var fyrir mörgum árum síðan! Namm hann var góður og ég finn enn bragðið.

En á Æstustöðum fundum við hvernig okkur langar að hafa það...eins og ég hef svo hundrað sinnum talað um við þá sem þekkja mig vel. Langar að búa í Dalnum góða..í litlu en ekki of litlu húsi...með gluggum sem eru smá franskir og helst hvítir..ætli húsið verði ekki bara gulleitt með hvítum gluggum og fullt af blómum í gluggunum! Sólgult hús! Eins og þetta hérna!

Svo verða hænurnar á sínum stað..helst íslenski stofninn...og svo Vaka sem stjórnar öllu og kannski ein kisa til að veiða mýsnar..þær eru sko þarna! En samt kann ég ekki að hafa kisu..en held það sé ekki svo flókið!

HESTAR verða á heimilinu..og helst ekki svo fjarri svo maður geti nú hleypt þeim út og gefið og mokað út og riðið út um fallegu sveitina sína. En ég á ekki 14 milljónir, 22 milljónir eða 120 milljónir til þess að kaupa þau lönd sem í boði eru þarna í draumadalnum...Þannig að það er best að leggja þessar hugsanir til hliðar og einbeita sér að núinu!

Bless í bili...og Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn...sem var svooo fljótur að líða!

Svava...í vafa.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 23:48:38 / Sabbaló

Barnið vex en brókin ekki

Það var málshátturinn minn þetta árið. Ég er búin með páskaegg númer fimm frá hverjum öðrum en Nóa Siríus. Laangbest...og uppi á hillu stendur egg númer sex frá Góu, fengum það með rúminu um daginn...þannig að það bíður bara betri tíma...er komin með nóg af súkkulaði í bili! Já í bili sagði ég!!!

Er í smá athyglishléi frá vinnu...ég er að pirra mig á því að myndirnar sem ég hleð inn á myndafötuna koma ekki allar! Af hverju eltir eitthvað svona myndavesen mig á röndum! Fjábjáni eins og Sóljól segir...

Vel á minnst, hér var matarboð famílíunnar í kveld. Mútta og Vati voru með hangikjet að vestan og með því..ekkert smá gott ! Fólk tók vel til matar síns...en nú er þessu loksins lokið. Ég er nefnilega búin að vera í sukki síðastliðna daga...fór nú samt í tröllatíma á laugardaginn til að friða samviskuna..uppskar svita og tár daginn eftir því mitt bak og mjaðmir fóru að kvarta! Segir ýmislegt um líkamsástand viðkomandi kvenmanns....en allt má bæta...nýjan líkama, þúsund manna heeeeeer...ég er bara ég..þú ert bara þú...ég er bara mynd......

Þannig að inn á milli flögrar Sabba sveimhugi til framandi og kunnugra landa....Danmörk eftir rúmar 3 vikur og svo:

er það Tyrkland...Marmaris og Icmeler og allt það..sigling á fögru fleyi.......

6 vikur og 6 kíló to go!!!

Já það verður sko letilíf!!

Meira síðar!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 13:29:44 / Sabbaló

Beðið eftir sumrinu!

 

Image hosting by Photobucket

 

Og ég get ekki beðið eftir því heldur þó ég sé orðin aðeins eldri en krakkarnir á myndinni. Þessi mynd er tekin í Hólmavíkurkirkju, þegar skírnin var á Skírdag. Gott augnablik!

Hafið það gott það sem eftir er páskafrísins!

Sumarið er tíminn.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 22:39:21 / Sabbaló

Gleðilega páska!!

Á morgun, Skírdag, förum við skötuhjúin vestur á Hólmavík til þess að vera viðstödd skírn hjá Maríu mágkonu og Danna..hlakka til að koma vestur á Strandir! Komum svo heim á föstudag, þannig að það verður stutt stopp!

Hittumst nokkrar skvísur á Vegamótum í dag og það var kærkomið að kúpla sig út út lokaverkefnisvinnunni og snæða saman dýrindis mat! Mæli alveg með því...en mikið hlakka ég til þegar reykingar verða bannaðar á almennum stöðum eins og þessum! Það var gersamlega ólíft þarna inni!

Á sunnudaginn fæ ég súkkulaði og ég hlakka svoooo til!! Á annan ætlar stórfjölskyldan að spísa sammen hangikjet hjá múttu og pabba! Og svo inn á milli verð ég að lesa og skrifa! Endalaust hægt að bæta við verkefnið:)

Eigið góða páska og gleðilega og allt það, og borðið nóg af súkkólaði því það er svoo gott! Það má sprikla það af sér eftir helgina!!

Over and out:)

Súkkulaðihænan


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19